spot_img
HomeFréttirEvans tekur slaginn með Haukum

Evans tekur slaginn með Haukum

Haukar hafa ráðið til sín leikmann til að taka slaginn í Domino‘s deild kvenna í vetur. Sú heitir Siarre Evans og lék með East Tenessee State háskólanum en þar var hún að skora 16,5 stig að meðaltali, taka 11 fráköst og gefa 2 stoðsendingar. Þetta kemur fram á www.haukar.is
Evans hefur nokkra Evrópu reynslu en hún byrjaði atvinnumannaferilinn í Lúxemborg með Racing Lúxemborg. Þar var hún með 32 stig, 18.4 fráköst og 3 stoðsendingar að meðaltali og eftir tímabilið með Racing fór hún til Apollon Ptolemaidos á Grikklandi þar sem hún lék aðeins sjö leiki. Á Grikklandi skoraði hún 17 stig, var með 12,7 fráköst og 1,7 stoðsendingar en færði sig svo um set og spilaði með FoA í Finnlandi og kláraði tímabilið í fyrra með þeim.
 
„Þar sem lið mega nú aðeins vera með 1 erlendan leikmann þá var ég að leita eftir fjölhæfum leikmanni sem að getur leyst nokkrar stöður á vellinum, leikmanni sem hefði helst reynslu af því að spila í Evrópu og er það von mín að Siarre Evans sé sá alhliða leikmaður sem ég er að leita af,“ sagði Barni Magnússon þjálfari Hauka og bætti við að hún hafi fengið góð meðmæli frá fyrrum þjálfurum sínum.
 
Jence Ann Rhoads spilaði með Haukaliðinu í fyrra og sýndi að þar er á ferðinni gríðarlega öflugur leikmaður en hún ákvað að færa sig um set og spila á meginlandi Evrópu í stað þess að koma aftur til Hauka.
 
„Það verður erfitt að fylla skarð Jence en ég hef mikla trú á þessari stelpu og trúi því að hún eigi eftir að standa sig með sóma og falla vel inn í okkar leikskipulag. Þetta er svo sem alltaf hálfgert lotterí með hvernig leikmann maður er að fá og hvernig hún á eftir að passa inn í þann hóp leikmanna sem er fyrir en við munum taka vel á móti henni og svo vona það besta“.
 
Haukar hefja leik á miðvikudaginn gegn Keflavík í Domino‘s deildinni.

Mynd/etsu.com 

 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -