spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaErna, Júlía og Jóhanna í grænu næstu tvö árin

Erna, Júlía og Jóhanna í grænu næstu tvö árin

Júlía Scheving Steindórsdóttir, Erna Freydís Traustadóttir og Jóhanna Lilja Pálsdóttir hafa allar samið við kvennalið Njarðvíkur til næstu tveggja ára.

Júlía sem er 21 árs gömul var með 5,8 stig, 7,9 fráköst og 2,9 stoðsendingar að meðaltali í vetur og Erna Freydís sem er 19 ára og kom inn á miðri leiktíð var með 13 stig, 4 fráköst og 1,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Hin 18 ára gamla Jóhanna Lilja var með 11,7 stig, 4,7 fráköst og 1,8 stoðsendingu á leik.

Fréttir
- Auglýsing -