spot_img
HomeFréttirErfiður þriðji leikhluti stúlkunum að falli í Podgorica

Erfiður þriðji leikhluti stúlkunum að falli í Podgorica

 

Undir 16 ára lið stúlkna leikur þessa dagana á Evrópumóti í Podogorica í Svartfjallalandi. 

 

Fimm lið erun með Íslandi í riðli, Bretland, Grikkland, Makedónía, Svíþjóð og heimastúlkur frá Svartfjallalandi. Eftir keppni í riðlinum verður leikið um öll sæti keppninnar í úrslitakeppni. 

 

Í dag tapaði liðið sínum þriðja leik á mótinu gegn Grikklandi, 39-81.

 

Segja má að íslenska liðið hafi verið að elta allan leikinn í dag. Strax eftir fyrsta leikhluta var forysta Grikklands orðin 9 stig, 11-20. Grikkland bætti svo við forskotið undir lok fyrri hálfleiksins, en þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 18-32.

 

Úr því svosem ekki ógerlegt fyrir íslenska liðið að vinna sig aftur inn í leikinn þar sem að munurinn var aðeins 14 stig. Grikkland mætti þó miklu betur inn í seinni hálfleikinn og eru komnar 38 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 21-59. Í honum gera þær svo það sem þurfti til að sigla nokkuð öruggum 42 stiga sigri í höfn, 39-81.

 

Thea Jónsdóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu í dag, skilaði 8 stigum og 6 fráköstum á rúmum 22 mínútum spiluðum.

 

Næst leikur liðið kl. 16:15 á mánudag gegn Bretlandi, en sá leikur verður í beinni útsendingu hér.

 

Tölfræði leiks

 

Upptaka af leiknum:

Fréttir
- Auglýsing -