HomeBónus deildinBónus deild karlaFimm ljósir punktar í haustbragnum

Fimm ljósir punktar í haustbragnum

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar gerðu þeir Davíð Eldur, Jón Frí og Árni Jó upp fyrstu tvær umferðirnar í Bónusdeild karla.

Samhliða umræðu um bestu erlendu leikmennina, bikarinn og heitustu vendingarnar tóku félagarnir saman fimm helstu ljósu punktana á upphafsvikum tímabilsins – ásamt einum öflugum af bekknum:

Fimm ljósir punktar í haustbragnum

1. Atli Freyr Haraldsson Katrínarson (Valur)

Atli hefur farið gjörsamlega á kostum í fyrstu tveimur leikjunum. Hann spilar 34,6 mínútur að meðaltali og skilar 17,0 stigum, 13,0 fráköstum, 1,5 stoðsendingum, 1,5 vörðum skotum og 27,5 í framlag – sem gerir hann að framlagshæsta íslenska leikmanni deildarinnar. Skotnýtingin er lygileg eða 72,2% í heildina (72,7% í tveggja stiga og 71,4% í þriggja stiga). Þótt nýtingin muni eflaust leita niður á jörðina þá velur hann skotin sín af miklum þroska og yfirvegun. Finnur Freyr spilar honum nánast eins og rándýrum Bosman-leikmanni og Atli svarar kallinu fullkomlega.

2. Ótrúlegur sóknarleikur Álftnesinga

Tölfræðin hjá Álftnesingum í sókninni er söguleg eftir tvo leiki: 1,28 stig í hverri sókn (points per possession). Til samanburðar er metið í NBA 1,22 stig (Boston Celtics 2023–24 og Cleveland Cavaliers 2024–25). Vissulega er úrtakið lítið og gegn tveimur liðum sem hafa tapað mikið af boltum (ÍR og Hetti), en 73% skotnýting í tveggja stiga skotum er engu að síður hreint ótrúleg byrjun.

3. KR stjórnar teignum og fráköstunum

Vesturbæingar eru að leggja grunninn að sínum sigrum undir körfunni. KR trónir á toppnum í frákastahlutfalli (rebound share) og hirðir 58% allra lausra bolta, þar af 81% af varnarfráköstum. Þá passa þeir hringinn gríðarlega vel og halda andstæðingum sínum í 41% nýtingu í tveggja stiga skotum án þess að brjóta mikið, enda hafa mótherjar þeirra tekið þriðju fæstu vítin í deildinni. Ramsted leiðir teiginn með 14,5 fráköst og leikmenn eins og Linards, Tóti, Frikki og Lanaras leggja allir mikið í púkkið.

4. Baráttuhjarta Hattar (Grit & Grind)

Það er margt sem Höttur þarf að slípa til – liðið tapar 18 boltum í leik og vörnin á eftir að smella – en baráttan og vinnusemin eru til fyrirmyndar. Eftir tvær umferðir hirða Héraðsmenn flest sóknarfráköst allra í deildinni. Þeir tóku 16 sóknarfráköst í sigrinum gegn Stjörnunni í Garðabæ, þar af tók Sveinn Búi sex stykki, og unnu lokamínútuna 8–3 eftir risastórt frákast í blálokin. Höttur sækir af mikilli hörku á vítalínuna, tekur 33 víti í leik og nýtir þau vel (76% nýting gegn 72% deildarmeðaltali). Hreint mögnuð barátta hjá liði sem lét stjörnum prýdda Garðbæinga finna rækilega fyrir sér.

5. Flott mæting og góð umgjörð

Körfuboltaaðdáendur hafa mætt ákveðnir til leiks í haust. Pallaleikurinn á Álftanesi bauð upp á frábæra sjón, mætingin á fyrstu heimaleiki Vals og Stjörnunnar var til fyrirmyndar og stúkan í Frostaskjóli hjá KR hefur verið þéttsetin. Körfuboltasamfélagið heldur áfram að stækka og fjölmiðlaumfjöllunin eflist með hverju árinu, en það toppar ekkert að finna lífið og kraftinn beint í stúkunni á leikdegi.

Sjötti maðurinn á listanum – Dómaratríó í Garðabæ

Dómararnir í leik Stjörnunnar og Hattar fá hrós vikunnar frá sérfræðingunum fyrir að halda flautunni niðri þegar Hilmar Smári Henningsson tróð af miklum krafti í umferð og hífði sig upp í körfuhringinn. Það er mikilvægt fyrir leikinn að leyfa tilfinningum og neista að lifa án þess að refsa strax með ódýrri tæknivillu.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -