Grískur körfuknattleikur skelfur eftir að yfirvöld í Grikklandi gáfu út handtökuskipun á hendur Vangelis Liolios, forseta gríska körfuknattleikssambandsins (EOK), ásamt fimm öðrum einstaklingum innan hreyfingarinnar vegna rannsóknar á umfangsmiklu veðmálasvindli og hagræðingu úrslita.
Samkvæmt gríska miðlinum iEidiseis beinist málið að meintu hagræði úrslita í grískum körfuboltageiranum og ólöglegri veðmálabrellu. Liolios, sem hefur verið einn valdamesti maður íþróttarinnar þar í landi frá því hann tók við embætti forseta í september 2021, er meðal sex einstaklinga sem handtökuskipunin nær yfir. Hinir fimm tengjast dómaramálum og stjórnsýslu sambandsins, þar á meðal tveir starfandi dómarar.
Rannsókn málsins hefur staðið yfir í um þrjá mánuði og leiddi til þess að sakamál var höfðað eftir skoðun á sönnunargögnum og vitnisburðum. Liolios og hinir grunuðu voru boðaðir til skýrslutöku meðan á rannsókninni stóð en mættu ekki.
Í kjölfarið var málið sent rannsóknardómara sem samþykkti, með samþykki saksóknara, útgáfu handtökuskipananna. Rökstuddu dómsyfirvöld ákvörðunina meðal annars með því að talin væri hætta á að hinir grunuðu myndu reyna að flýja land. Sem liður í rannsókninni hefur lögreglan einnig gert húsleitir á heimilum þeirra sem málið varðar, en enginn þeirra hefur enn verið dæmdur sekur fyrir dómstólum.




