Liðin skiptu stigunum jafnt á milli sín fyrstu mínútur leiksins. Blikar voru fljótir að koma sér í villuvandræði og voru heimamenn komnir í bónus strax þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Sóknarleikur Breiðabliks fór nánast eingöngu í gegnum Þorstein Gunnlaugsson sem hafði skorað 11 af fyrstu 14 stigum liðsins þegar 8 mínútur voru liðnar. Valsmenn tóku þá af skarið og keyrðu hratt á gestina, þeir náðu mest 10 stiga forskoti þegar ein mínúta var eftir af leikhlutanum, 25-15. Þar munaði um mikið að Þorsteinn skoraði ekki stig síðustu 3 mínútur leikhlutans. Þannig stóðu svo tölur þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta.
Valsmenn héldu uppteknum hætti í upphafi annars leikhluta og juku forskotið hægt og rólega. Þegar tvær mínútur voru liðnar tók Breiðablik leikhlé í stöðunni 32-17. Leikhléið gaf þeim lítið því Valur skoraði næstu 8 stig og Blikar voru að fara einstaklega illa með boltan í sókninni, þeir töpuðu boltanum trekk í trekk og höfðu ekki skorað nema 2 stig þegar leikhlutinn var hálfnaður, 40-17. Það var ekki fyrr en eftir rúmar 5 mínútur sem næstu stig Breiðabliks komu og þar var Þorsteinn Gunnlaugsson að verki, 40-19. Forskot Vals í var komið í 22 stig þegar flautað var til hálfleiks, 49-27. Sóknarleikur gestana tók smá kipp undir lok fyrri hálfleiks og tóku fleiri leikmenn liðsins af skarið.
Stigahæstur í liði Vals í hálfleik var Chris Woods með 17 stig og 7 fráköst en næstir voru Ragnar Gylfason með 7 stig Kristinn Ólafsson með 6 stig. Hjá Blikum var Þorsteinn Gunnlaugsson með 19 stig og 7 fráköst en næstir voru Hraunar Karl Guðmundsson með 5 stig og Atli Örn Gunnarsson með 2 stig og 8 fráköst.
Það voru Blikar sem mættu af meiri krafti inní seinni hálfleik og höfðu skorað fyrstu 6 stig leiksins þegar tvær mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta, 49-33. Það var ekki fyrr en Benedikt Blöndal svaraði með þrist stuttu seinna sem Valsmenn komu sér aftur af stað. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta höfðu Valsmenn aftur náð forskotinu upp í 25 stig, 60-35. Blikar hleypti þeim ekki lengra en það og minnkuðu muninn niður í 18 stig þegar það var minnst í þriðja leikhluta. Forskot Vals var því í kringum 20 stig það sem eftir lifði leikhlutans og þannig stóðu tölur þegar einn leikhluti var eftir, 68-48.
Leikurinn fjaraði nokkuð út þegar leið á fjórða leikhluta, leikurinn einkenndist af töpuðum boltum og mjög hröðum leik. Blikar gáfust þó hvergi upp og og minnkuðu forskotið hægt og rólega niður. Þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum var forskot Vals komið niður í 11 stig, 79-68. Blikar höfðu þá skorað 20 stig gegn 11 stigum Vals í fjórða leikhluta. Valsmenn virtust tapa einbeitingu og það var ekki fyrr en Ágúst tók leikhlé þegar þrjár og hálf var eftir að þeir mættu aftur til leiks og settu næstu 4 stig leiksins. Blikar pressuðu Valsmenn hátt og tókst að þvinga lélegar sendingar og léleg skot. Það gaf Blikum tækifæri á að minnka muninn enn meira sem þeir gerðu. Hraunar Karl Guðmundsson fór á línuna að taka 3 skot þegar það voru 50 sekúndur eftir og minnkaði muninn niður í 6 stig, 83-77. Hraunar setti þrist í næstu sókn og Blikar höfðu þá skorað 6 stig gegn einu stigi Vals á rúmlega 10 sekúndum, 84-80. Ragnar Gylfason og Kristinn Ólafsson settu þá næstu fjögur stig leiksins fyrir Val þegar tæpar þrjátíu sekúndur voru eftir, 88-80. Liðin skoruðu svo sitt hvora körfuna áður en leikurinn var flautaður af og því var 8 stiga sigur Vals í höfn, 90-82.
Stigahæstur í liði Vals var Chris Woods með 31 stig og 12 fráköst en næstu menn voru Ragnar Gylfason með 19 stig og 5 stoðsendingar og Kristinn Ólafsson með 11 stig. Hjá Breiðablik var Þorsteinn Gunnlaugsson stigahæstur með 30 stig og 11 fráköst. Atli Örn Gunnarsson og Hraunar Karl Guðmundsson voru næstu menn á blað hjá Blikum en þeirr áttu virkilega góðan seinni hálfleik og voru þeir menn sem stigu upp þegar Valsmönnum tókst að loka á Þorstein Gunnlaugsson. Þeir félagar skoruðu samanlagt 40 stig í seinni hálfleik sem verður seint talið lélegt. Atli Örn skoraði 18 stig í leiknum og hirti 14 fráköst en Hraunar Karl skoraði 20 stig og stal 5 boltum.
Mynd: Torfi Magnússon – Benedikt Blöndal, Valsari í baráttunni gegn Snæfell í fyrra – Úr myndasafni