spot_img
HomeFréttirEndar tímabil nýliða Þórs Akureyri í DHL Höllinni í kvöld?

Endar tímabil nýliða Þórs Akureyri í DHL Höllinni í kvöld?

 

Einn leikur er í 8 liða úrslitum Dominos deildar karla í kvöld. Í honum tekur KR á móti Þór Akureyri í þriðja leik liðanna í einvíginu. KR unnið tvo fyrri leikina, svo að með sigri í kvöld bóka þeir sér miða til undanúrslitanna á sama tíma og þeir binda endi á tímabil nýliða Þórs Akureyri. 

 

Hérna er yfirlit yfir 8 liða úrslitin

 

 

Þá fer síðasta umferð Dominos deildar kvenna fram í kvöld. Fyrir einhverju ljóst hvaða lið það verði sem að verða með í úrslitakeppninni sem og hvaða lið það verður sem að fellur. Engu að síður áhugaverðir leikir, því líklegast vilja liðin hvorugt enda leiktíð sína með tapi, né fara inn í úrslitakeppnina með það að hafa tapað síðasta leik fyrir hana á bakinu. Mjög fróðlegt verður að fylgjast með leik tveggju efstu liða deildarinnar, Snæfells og Keflavíkur. Liðin spilað innbyrðis í deildinni þrisvar áður í vetur, en Snæfell hefur (nokkuð tæpt stundum) náð að fara með sigur af hólmi.

 

Hérna er staðan í Dominos deildinni

 

 

 

Leikir dagsins:

 

8 liða úrslit Dominos deildar karla:

KR Þór Akureyri – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport

 

 

Dominos deild kvenna:

Valur Skallagrímur – kl. 18:00
 

Stjarnan Grindavík – kl. 19:15
 

Snæfell Keflavík – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
 

Njarðvík Haukar – kl. 19:15
 

Fréttir
- Auglýsing -