Emil Þór Jóhannsson var ekki í leikmannahópi KR í kvöld og munar um minna enda geysilega öflugur leikmaður þar á ferð eins og allir vita. Emil er að glíma við meiðsli aftan í öðrum fæti.
Í snörpu samtali við Karfan.is eftir leik Fjölnis og KR í gær kvaðst Emil þó vongóður um að vera með strax í næsta leik hjá KR en það er í 2. umferð Domino´s deildar karla þegar KR tekur á móti Tindastól þann 11. október í DHL-Höllinni.




