Dregið verður í riðla fyrir Evrópumót karla 2015 í Disneyland í París þann 8. desember n.k. kl.15:00 að íslenskum tíma. Í fyrsta sinn í sögu Evrópukeppninnar verður Ísland eitt 24 þátttökuþjóða. Riðlakeppnin hefst 5. september. www.kki.is greinir frá.
Riðlakeppnin fer fram í fjórum löndum en leikið verður í Berlín (Þýskalandi), Montpellier (Frakklandi), Riga (Lettlandi) og Zagreb (Krótatíu). Úrslitakeppnin fer síðan fram í hinni fögru borg Lille í Frakklandi í hinni stórbrotnu Lille Arena sem rúmar 27.000 manns í sæti.
Tvö efstu liðin tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum 2016 sem fara fram í Rio de Janeiro í Brasilíu en liðin sem enda í sæti 3.-6. Tryggja sér rétt til að spila í undankeppni FIBA fyrir Ólympíuleikana.
Þetta er í fyrsta sinn í 80 ára sögu Evrópumótsins sem riðlakeppnin fer fram í fjórum löndum.
29. nóvember verður dregið í riðla fyrir Evrópumót kvenna í Búdapest í Ungverjalandi en mótið verður haldið í Ungverjalandi og Rúmeníu sumarið 2015.
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson