HomeFréttirEistland með nauman sigur á u16 Íslands

Eistland með nauman sigur á u16 Íslands

Undir 16 ára lið Íslands tapaði fyrir Eistland í fyrsta leik Norðurlandamóts þessa árs í Vasalundshallen með 57 stigum gegn 61.

 

Leikurinn fór skemmtilega af stað, þar sem að augljóst var að bæði lið ætluðu sér sér að leggja allt í sölurnar til þess að sigra þennan leik. Eistar þó skrefinu á undan í 1. leikhlutanum, unnu hann með 17 stigum gegn 14 íslendinga.

 

Í öðrum leikhlutanum mætti lið Íslands þó mun betur stemmt til leiks og náði t.a.m. að byggja sér upp 7 stiga forystu, sem eistar unnu þó niður og voru, þegar að liðin héldu til búningsherbergja, komnir með stigs forskot í 35-36.

 

Mestu munaði um framlag Heru Sóleyjar Sölvadóttur í þessum fyrri hálfleik, en hún skoraði 8 stig og tók 2 fráköst.

 

Seinni hálfleikurinn var jafn spennandi og sá fyrri. Að mörgu leyti einnig líkur þeim fyrri að því leyti að Eistland virtist vera skrefinu á undan. Þriðji leikhlutinn endaði þó með jöfnu skori, eða 10 stigum gegn 10 og eistar því enn 1 stigi á undan fyrir átök lokaleikhlutans.

 

Í fjórða leikhlutanum misstu þær íslensku aðeins dampinn og leyfðu Eistlandi mest að komast 7 stigum á undan. Þann mun náðu þær næstum að vinna upp og voru komnar í bullandi sjéns undir lok leiksins. Ef að nokkur vítaskot hefðu dottið með þeim og nokkrar ákvarðanir í bæði sókn og vörn hefðu verið á réttan veg, þá hefði Ísland unnið.

 

Atkvæðamest í íslenska liðinu var Þóranna Kika Hodge Carr, en hún skoraði 14 stig, tók 3 fráköst og stal 2 boltum á þeim 37 mínútum sem hún spilaði í leiknum.

 

Næsti leikur liðsins er gegn Noregi í fyrramálið kl 09:00, en hægt verður að fylgjast með honum inni á www.kki.is (tölfræði) og að sjálfsögðu fylgir umfjöllun eftir leik héðan af www.karfan.is.

 

Umfjöllun, myndir & viðtöl / Davíð Eldur

 

Myndir

Fréttir
- Auglýsing -