spot_img
HomeFréttirEinar Árni: Höfum fulla trú á þessu verkefni

Einar Árni: Höfum fulla trú á þessu verkefni

12:00 

{mosimage}

 

 

Komið er að úrslitastund í Iceland Express deild karla en í kvöld mætast Njarðvík og KR í fjórða úrslitaleiknum þar sem KR getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Liðin mætast kl. 20:00 í DHL-Höllinni og verður leikurinn í beinni útsendingu hjá SÝN. Staðan í einvíginu er 2-1 KR í vil eftir frækinn sigur í Ljónagryfjunni á laugardag 92-96. Ef Njarðvíkingum tekst að knýja fram sigur í kvöld þarf að bregða til oddaleiks sem mun þá fara fram í Ljónagryfjunni á miðvikudag.

 

Víkurfréttir settu sig í samband við Einar Árna Jóhannsson, þjálfara Njarðvíkinga, en Einar segir leik kvöldsins vera verðugt verkefni og að liðið treysti á góðan stuðning úr stúkunni í kvöld.

 

,,Ég hef fulla trú á því að leikur þrjú sé kominn úr mönnum og þeir einbeittir fyrir verkefni kvöldsins. Við fórum yfir það sem aflaga fór í síðasta leik en það er enginn tími til þess að vera að velta síðasta leik of mikið fyrir sér. Menn verða núna að trúa á sjálfa sig, framkvæma hlutina og hugsa ekki of mikið,” sagði Einar en í síðustu tveimur leikjum liðanna hafa Njarðvíkingar ekki náð að halda dampi á síðustu mínútum leikjanna. ,,Nú er lag að klára 40 mínútur og við höfum talað um það fyrir síðustu tvo leiki og nú er bara að standa við það.”

 

Von er á fjölmenni í DHL-Höllina í kvöld og segir Einar að heimavöllurinn hafi til þessa ekki verið heilagur í úrslitakeppninni. ,,Við höfum fulla trú á þessu verkefni okkar og hlökkum til að mæta í troðfullt íþróttahús KR í kvöld og ætlum að njóta þess að spila skemmtilegan körfubolta. Það er virkilega verðugt verkefni að fara vestur í bæ og við ætlum okkur að sjálfsögðu að knýja fram oddaleik og treystum á góðan stuðning í kvöld,” sagði Einar Árni.

  

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -