Fyrir leik Keflavíkur og Njarðvík í gær heiðraði Hannes Jónsson formaður KKÍ þá Eggert Þór Aðalsteinsson og Einar Skarphéðinsson fyrir það að þeir hafa nú dæmd 1000 leiki hvor. Eggert og Einar tóku viðurkenningunni vel og dæmdu leikinn af röggsemi. Karfan.is óskar þeim innilega til lukku með áfangann.