HomeFréttir"Ef Pavel getur spilað alla leikina þá sé ég KR vinna þetta"

“Ef Pavel getur spilað alla leikina þá sé ég KR vinna þetta”

Við fengum þjálfarann Björn Einarson til þess að rýna aðeins í úrslitaseríu KR gegn Tindastól. Björn hefur á undan förnum árum skapað sér gott orð fyrir bæði yngriflokka þjálfun, sem og hefur hann einnig  þjálfað fáeinn meistaraflokkinn (s.s. hjá Hetti og í Vestmannaeyjum), því áhugavert að vita hvað kappinn hefur að segja.

 

Hvernig finnst þér liðin match-a upp gegn hvoru öðru? Liðin matcha vel. Flottir leikmenn i öllum stöðum, flottir þjálfarar og hlakkar mig mikið til að horfa á þessa veislu. Svali Björgvins og Gaupi að lýsa og allir sáttir!

Hvernig meturu hverja stöðu fyrir sig? 
Pavel vs Pétur : Reynslan vegur mjög þungt hérna. Pétur efnilegur og flottur en Pavel mun betri í dag.
Brilli vs Ingvi : Sama hérna og að ofan nema Brilli er dirty player og fer lengra á því.
Darri vs D. Lewis : Báðir hörku varnarmenn og baráttu hundar. Lewis ekki bara mun dýrari leikmaður en einnig að mínu mati mun betri alhliða leikmaður.
Helgi Magg vs Dempsey: Helgi Magg hefur nauman vinning hérna. Þvílíkur Fógeti! Dempsey samt mjög flottur.
Craion vs Helgi Rafn: Craion er betri leikmaður og skorari, en Helgi Rafn er leikmaður sem mótherjar hata en Allir myndu vilja hafa með sér i liði. ALLIR! Grjótharður vinnuþjarkur! 

Helstu varamenn:
Björn Kr vs Helgi Freyr: Tvær byssur sem þurfa skila miklu framlagi.  Hérna eru líklegir x factorar síns liðs.  Jafnt hérna. 
Finnur Atli vs D. Flake : Báðir mjög mikilvægir hlekkir og flottir að koma inná til að fá sínar 4-5 villur. Jafnt hérna. 
Magni Hafsteins vs Svavar Birgis: Þvilikir töffarar og fagmenn, reynslan og nefndu það.. Magni betri varnarmaður en Svavar töluvert betri sóknarmaður. Ég segi að Svavar skili betra framlagi hérna í finals. 

Hvar sérðu kosti hvers liðs liggja í þessari seríu? KR með marga sigurvegara innanborðs og vanir svona leikjum og aðstæðum. Lið með Helga Magg, Pavel og Craion eiga ekki að geta tapað leikjum. – Tindastóll eru með sterkan heimavöll og hafa ENGU að tapa sem er mikill kostur og gott veganesti í þessa rimmu. 

Hverjir eru helstu veikleikar hvors liðs fyrir sig? KR: Tindastóll Hjá KR er varla veikan blett að finna! En hjá KR er mjög mikil pressa að vinna titilinn með þetta lið! Ef þeir vinna hann ekki þá verður allt vitlaust i Vesturbænum. Benni Gumm með lausan samning og bíður eftir þessu starfi? Höndla KR þessa pressu?? Veikleikar Tindastóls: Þrátt fyrir reynslumikla leikmenn eru Stólarnir með litla reynslu af svona úrslitaleikjum. Darrell Lewis hefur aldrei leitt lið til sigurs á Íslandsmótinu og verður fróðlegt að sjá hvort það gangi upp í þetta skiptið!

Hvernig heldur þú að þetta eigi eftir að spilast út? Hvernig spáir þú að þetta fari? Tindastóll þurfa einhvern Íslending til að stíga upp og skila alvöru framlagi til að eiga möguleika á sigri, s.s. þurfa finna þennan X-Factor en það var ekki mikið til staðar i síðustu leikjum gegn Haukum.. KR þurfa halda öllum ferskum og ef Pavel getur spilað alla leikina þá sé ég KR vinna þetta 3-2. En, ég hef sterkar taugar til Tindastóls og vona innilega að þeir vinna 2-3 þó líkurnar séu ekki með þeim! 

Fréttir
- Auglýsing -