HomeFréttirDuke sendi Maryland í frí: Byrjunarliðsmaðurinn Haukur

Duke sendi Maryland í frí: Byrjunarliðsmaðurinn Haukur

 
Haukur Helgi Pálsson og félagar úr Maryland eru úr leik í bandarísku háskóladeildinni en Maryland mætti Duke í kvöld og máttu þola ósigur í úrslitakeppni ACC riðilsins, 71-87. Haukur var á nýjan leik í byrjunarliði Maryland og hefur vakið verðskuldaða athygli sem byrjunarliðsleikmaður og það nýliði sem er ekki algeng sjón þar vestanhafs. 
Haukur byrjaði vel í leiknum og skoraði snemma 5 stig og þau urðu reyndar ekki fleiri á þeim 24 mínútum sem hann spilaði í leiknum. Þá var Haukur einnig með 3 stoðsendingar, 1 frákast og 1 varið skot.
 
Leiktíðinni er því lokið hjá Hauki og félögum og hefur kappinn stimplað sig rækilega inn í ungt og efnilegt lið Maryland.
 
Fréttir
- Auglýsing -