spot_img
HomeFréttirDómstóll KKÍ dæmdi í 2 málum

Dómstóll KKÍ dæmdi í 2 málum

16:10

Dómstóll KKÍ hefur í dag kveðið upp dóm í tveimur málum. Bæði málin voru í 2. deild karla þar sem lið voru kærð fyrir að hafa notað ólöglega leikmenn.

Hvíta Riddarinn kærði leik gegn UMFG b sem að fór fram 3. febrúar síðastliðinn.

Dómsorð eru eftirfarandi: Ungmennafélagið Grindavík telst hafa tapað leik gegn Hvíta riddaranum í II. deild karla, riðli A-2, sem fram fór 3. febrúar 2007 með stigatölunni 0-20.

ÍBV kærði leik gegn ÍKHÍ sem að fór fram 4. febrúar síðastliðinn.

Dómsorð eru eftirfarandi: ÍKHÍ, körfuknattleiksfélag telst hafa tapað leik gegn ÍBV körfuknattleiksfélagi í II. deild karla riðli A-5 sem fram fór 4. febrúar 2007 með stigatölunni 0-20.

 

Dómur í leik Hvíta Riddarans og UMFG b breytir stöðunni í 2. deild A2 nokkuð en Hvíti Riddarinn var í þeirri stöðu að þurfa að treysta á aðra til að komast áfram en nú þurfa þeir einungis að treysta á sjálfa sig.

 

www.kki.is og [email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -