spot_img
HomeFréttirDomino´s deild kvenna hefst í kvöld

Domino´s deild kvenna hefst í kvöld

Í kvöld hefst keppni í úrvalsdeild kvenna og eins og flestum ætti að vera kunnugt hafa úrvalsdeildir kalra og kvenna fengið nýjan bakhjarl og verða næstu þrjú árin Domino´s deildirnar. Að þessu sinni eru það Njarðvíkingar sem eiga tvo titla að verja en liðið varð tvöfaldur meistari á síðustu leiktíð. Bikarmeistari eftir úrslitaleik við Snæfell í Laugardalshöll og Íslandsmeistari eftir skemmtilega seríu gegn Haukum.
Heil umferð verður leikin í kvöld en alls eru 28 umferðir í Domino´s deild kvenna og var keppt með nýju fyrirkomulagi á síðustu leiktíð sem heldur áfram þessa vertíðina.
 
Leikir kvöldsins í Domino´s deild kvenna, kl. 19:15:
 
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
 
Í gær kynnti KKÍ einnig nýjan Draumaliðsleik eða svokallaða ,,fantasy-deild" og fer hún fram á dominosdeildin.is.
  
Fréttir
- Auglýsing -