spot_img
HomeFréttirDómaratreyjan verður appelsínugul

Dómaratreyjan verður appelsínugul

Körfuknattleiksdómarafélag Íslands (KKDÍ) hefur samið við tvo nýja samstarfsaðila, Domino´s og Húsasmiðjuna, til næstu þriggja keppnistímabila. „Þetta eru mikilvægir samningar fyrir okkur dómara og gera okkur kleift að halda úti öflugu félagsstarfi næstu árin og jafnframt efla og bæta körfuknattleiksdómgæslu hérlendis. Við fögnum því að ganga til samstarfs við þessi öflugu fyrirtæki,“ segir Jón Bender, formaður KKDÍ. Auk þess verður framhald áralöngu samstarfi KKDÍ og Lengjunnar.
Samhliða þessu hafa orðið breytingar á dómaratreyjunum. Svarti liturinn víkur fyrir appelsínugula litnum sem verður allsráðandi í Domino´s deildum karla og kvenna en grár búningur verður aðaltreyjan í öðrum deildum og mótum.
 
Mynd/ Frá undirritun samstarfssamnings KKDÍ og Húsasmiðjunnar: Jón Bender og Eggert Þór Aðalsteinsson frá KKDÍ og Magnús Magnússon og Sævar Örn Sævarsson frá Húsasmiðjunni.
  
Fréttir
- Auglýsing -