spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaDimitris Zacharias tekur við Vestra

Dimitris Zacharias tekur við Vestra

Körfuknattleiksdeild Vestra hefur samið við Dimitris Zacharias um að hann stýri meistaraflokki félagsins í 1. deild kvenna á komandi leiktíð ásamt því að vera aðstoðarþjálfari Péturs Sigurðssonar hjá meistaraflokki karla. Pétur þjálfaði einmitt meistaraflokk kvenna á síðustu leiktíð en fer ekki langt og verður aðstoðarþjálfari Dimitris hjá liðinu.

Dimitras lauk B.Sc. gráðu í íþróttafræði, með áherslu á körfuboltaþjálfun frá Háskólanum í Aþenu árið 2003. Hann á að baki farsælan feril sem þjálfari á öllum stigum frá yngri flokkum upp í meistaraflokka karla og kvenna. Á þjálfaraferlinum hefur hann þjálfað í Grikklandi, á Írlandi og nú síðast í Egyptalandi. Í heimalandinu hefur hann undanfarin ár verið yfirþjálfari meistaraflokka karla og kvenna hjá Kiriarchi körfuknattleiksfélaginu í Aþenu, auk þess að stýra þjálfunarstefnu yngri flokka. Tímabilið 2018-2019 var hann yfirþjálfari í úrvalsdeild kvenna á Írlandi og skilaði liði sínu Waterford Wildcats í úrslitakeppni í fyrsta sinn í áratug.

Vestri endaði í níunda og neðsta sæti 1. deildarinnar á síðasta tímabili en liðið var að taka þátt í deildarkeppninni í fyrsta sinn síðan 2014-15 tímabilið er það lék undir merkjum KFÍ.

Fréttir
- Auglýsing -