18:49
{mosimage}
(Frá vinstri: Dimitar, Gunnar Sigurðsson og Bragi Magnússon við undirskriftina í dag)
Nú fyrir stundu gengu Stjarnan og Dimitar Karadzovski frá samkomulagi um að hann muni leika með liðinu næsta vetur. Dimitar, sem er Makedóni, hefur leikið síðastliðin tvö ár með Skallagrím við góðan orðstír og mun því söðla um og ljá nýliðunum frá Garðabæ krafta sína. Á þeim tveimur árum sem Dimitar hefur leikið með Skallagrím hefur hann leikið 43 leiki, skorað 17,9 stig að meðaltali og gefið 4,9 stoðsendingar. Þá skrifaði Bragi Magnússon þjálfari liðsins undir áframhaldandi samning við liðið í dag.
,,Liðið hefur mikinn metnað og ætlar sér að taka framfaraskref og mig langar til að aðstoða Stjörnuna við það. Hér er gott fólk og umgjörðin hefur farið stórbatnandi og því ákvað ég að semja við Stjörnuna,” sagði Dimitar í samtali við Karfan.is. Dimitar er á leið til síns heima í frí en kemur aftur til Íslands í ágúst. ,,Ég tel að það búi mikið í Stjörnuliðinu og við höfum á góðum þjálfara að skipa,” sagði Dimitar.
,,Við munum fá Bandaríkjamann til liðs við okkur en það er í skoðun hvað verður í þeim efnum. Við þurfum að leysa vissar stöður hjá okkur,” sagði Bragi Magnússon, þjálfari Stjörnunnar.
Gunnar Sigurðsson, formaður KKD Stjörnunnar sagði að liðið væri ekki á leið sinni í Iceland Express deildina bara til þess eins að verja sæti sitt í deildinni. ,,Við stefnum á úrslitakeppnina og það er okkar markmið númer eitt, það er ekkert annað inni í myndinni,” sagði Gunnar en var fljótur til svara þegar blaðamaður minntist á sigurlausa tímabilið hjá Stjörnunni þegar liðið lék síðast í efstu deild. ,,Þegar Stjarnan var síðast í efstu deild var ekki jafn mikill stuðningur við liðið og er nú og þá voru flestir okkar leikmenn tiltölulega reynslulitlir en þar hefur orðið veruleg breyting á,” sagði Gunnar.
[email protected] og [email protected]