spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaDedrick Basile til Njarðvíkur

Dedrick Basile til Njarðvíkur

Njarðvík hefur samið við Dedrick Basile um að leika með liðinu á komandi tímabili í úrvalsdeild karla. Dedrick er 26 ára, 178 cm Bandaríkjamaður, en hann kemur til liðsins frá Þór Akureyri. Þar átti hann stórgott tímabil á síðustu leiktíð, skilaði 19 stigum og 8 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Tilkynning:

Körfuknattleiksdeildin hefur samið við Dedrick Basile til að leika með liðinu á komandi tímabili. Basile er bakvörður sem lék með Þór Akureyri á síðasta tímabili og skilaði hann í hús rúmlega 19 stigum og 8 stoðsendingum í þeim 25 leikjum sem hann lék með liðinu á síðasta tímabili. Basil er 26 ára bandaríkjamaður og óhætt að segja að hann styrkir enn frekar ansi þéttann hóp liðsins fyrir komandi átök.

Fréttir
- Auglýsing -