HomeFréttirDavid Stern: Hornets hafa ekki sótt um nafnabreytingu

David Stern: Hornets hafa ekki sótt um nafnabreytingu

Netheimar hafa gjörsamlega logað eftir fréttir um hugsanlega nafnabreytingu á New Orleans Hornets komu út í gær.
 
David Stern sagði þó í morgun að Hornets séu ekki búnir að skila inn þeirri pappírsvinnu sem þarf til að breyta um nafn og því ekki hægt að staðfesta þær fréttir. Hann sagði hinsvegar að deildin væri viljug til að flýta ferlinu ef það gerðist og að hann efaðist ekki um að eigandi myndi velja skynsamlegt nafn. Einnig gaf hann það út að Hornets væru búnir að sækja um verndun á fimm óskilgreindum nöfnum.
Möguleiki gæti þá verið á því að Pelicans sé ekki orðið borðfast. Fólk virðist nefnilega ekki vera taka því allof vel og virðist frekar hallast að Krewe eða Brass.
 
Hérna eru nokkrar tillögur/hugmyndir sem hafa verið á floti um hugsanlegt nýtt nafn, lógó, litasamsetningu eða búninga:
 
 
Fréttir
- Auglýsing -