HomeFréttirDavid Stern frumsýnir nýtt "doo"

David Stern frumsýnir nýtt “doo”

Grái fiðringurinn kemur ca. 20 árum of seint fyrir David Stern alráð NBA deildarinnar en áhugasamir um hárgreiðslur tóku eftir því að Stern skartaði nýrri greiðslu þegar hann afhenti LeBron James verðlaunin fyrir mikilvægasta leikmanninn á dögunum. Greiðslan var af dýrari gerðinni og minnti ótrúlega á fræga greiðslu Pat Rileys sem þjálfaði Miami Heat í fleiri, fleiri ár.
 

Maður veltir því alveg fyrir sér hversu margar dollur af vaxi hann þurfti að nota til að ná endanlegri útgáfu og má gefa sér að þarna hafi þurft allavega þrjár, til eða frá.

 
Fyrir þá sem ekki þekkja til Davids Stern þá er hann vanur að skarta greitt til hliðar sem dettur nánast í „comb over“ og því er þetta gjörsamlega á skjön við það sem maður hefur séð frá honum til þessa. Yfirleitt lítur hann út fyrir að vera á leiðinni í sveitaklúbbinn svo virðuleg hefur greiðslan verið.
 
Ég verð að viðurkenna að ég er ekkert allt of hrifinn af nýju greiðslunni. Þetta Pat Riley mætir John Travolta úr Grease er bara ekki að gera sig og alls ekki fyrir Stern. Þetta er ekki svona NBA forsetalegt, engan veginn.
 
Maður furðar sig á að Stern hafi ekki bara farið alla leið með nýja lúkkið, hent sér í leðurjakka og yfirgefið völlinn á mótorhjóli, hjálmlaus, eftir að hafa afhent James bikarinn. Hann minnir frekar á vélhjólamann sem fékk ekki „memó“ um hvernig átti að klæða sig heldur en fulltrúi NBA deildarinnar.
 
Þrátt fyrir þetta verður að hrósa Stern fyrir að stíga út fyrir þægindarammann og inn í greiðsluna á Riley. Við vonum að sjálfsögðu að þetta hafi bara verið eins skiptis atburður sem átti sér stað þarna en hann er að detta eftirlaunapakkann og síðasti séns fyrir hann að prófa sig áfram í nýjum stílum áður en hann yfirgefur deildina.
 
Fyrir utan það að arka inn á rakarastofu í Miami og biðja um það sem getur bara verið kallað Rilerinn er kannski kominn tími fyrir kallinn að fara í verslunarleiðangur með Craig Sager, manninum á gólfinu, svo hann geti bætt nokkrum krókódíla eða blettatígurs jakkafötum í fataskápinn sinn.


Craig Sager

 
Það eina sem Stern getur bætt í flóruna er að fleygja þessum gleraugum sínum og henda sér með Russel Westbrook í umgjarðaleiðangur þar sem Westbrook hefur hellings tíma aflögu þessa stundina.


Russel Westbrook

 
Við verðum hins vegar bara að þola nýja lúkkið frá Stern sem er ferskt, öðruvísi og vaxborið en á sama tíma öskrar: „Pat Riley vill fá vaxið sitt aftur“
 
Fréttir
- Auglýsing -