Þór Akureyri vann sinn fyrsta sigur í 1. deild karla þegar liðið mætti Hamri á dögunum. Eric Palm sá um lokastig leiksins með magnaðri þriggja stiga körfu en það voru ekki einu tilþrifin sem litu dagsins ljós í Síðuskóla.
Darko Milosevic átti lengstu stoðsendingu tímabilsins undir lok fyrsta leikhluta, minnti óneitanlega á leikstjórnanda (e. Quarterback) í amerískum ruðningi.
Mynd/ Rúnar Haukur Ingimarsson – Norðanmenn kættust mjög við sigurinn á Hamri