spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaDamier Pitts til Grindavíkur

Damier Pitts til Grindavíkur

Grindavík hefur samið við Damier Pitts um að leika með félaginu út tímabilið í Subway deild karla. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Damer er 33 ára bandarískur leikstjórnandi sem kemur til liðsins frá Ungverjalandi, en hann hefur á síðustu árum leikið fyrir félög í Tyrklandi, Ítalíu, Lettlandi, Finnlandi, Portúgal og síðast í Ungverjalandi. Þá lék hann einnig á Íslandi fyrir áratug með liði KFÍ, en þá skilaði hann 34 stigum að meðaltali í leik.

„Það er ánægjulegt að fá Damier Pitts til liðs við okkur. Þetta er reynslumikill leikstjórnandi og ekki skemmir að hann þekkir nú þegar til þess að spila á Íslandi. Í ljósi þeirra breytinga sem hafa orðið á hópnum þá var ljóst að við þurftum að fá inn leikstjórnenda og ég er mjög ánægður með að fá Pitts til félagsins,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur.

Koma Pitts til félagsins þýðir að David Azore hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið.

Fréttir
- Auglýsing -