spot_img
HomeFréttirDagný Lísa og Wyoming töpuðu aftur fyrir Nevada

Dagný Lísa og Wyoming töpuðu aftur fyrir Nevada

Dagný Lísa Davíðsdóttir og Wyoming Cowgirls máttu þola annað tap í nótt fyrir Nevada Wolf Pack í bandaríska háskólaboltanum, 57-50, en í gær töpuðu þær einnig fyrir þeim, 60-52. Wyoming það sem af er unnið sex leiki og tapað sjö á tímabilinu, en sem stendur eru þær í 7. sæti Mountain West deildarinnar.

Dagný Lísa lék 25 mínútur í leik næturinnar. Á þeim skilaði hún fjórum stigum og frákasti. Næsti leikur Wyoming er gegn San Diego State Aztecs þann 29. janúar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -