spot_img
HomeFréttirDagný Lísa frákastahæst gegn Fresno State Bulldogs

Dagný Lísa frákastahæst gegn Fresno State Bulldogs

Dagný Lísa Davíðsdóttir og Wyoming Cowgirls máttu þola tap í kvöld fyrir Fresno State Bulldogs eftir framlengdan leik í bandaríska háskólaboltanum, 83-80. Leikur kvöldsins sá annar á milli liðanna á aðeins þremur dögum, en þann fyrri unnu Wyoming síðastliðinn laugardag, 65-63. Wyoming það sem af er tímabili unnið fjóra leiki en tapað þremur.

Dagný Lísa var í byrjunarliðinu í kvöld og lék 32 mínútur í leiknum. Á þeim skilaði hún 7 stigum, 12 fráköstum og 2 stoðsendingum, en hún var frákastahæst allra leikmanna leiksins. Næst leika Wyoming gegn Boise State 11. janúar.

Tölfræði leiks

ESPN spilarinn – Heimili bandaríska háskólaboltans

Fáðu áskrift að ESPN spilaranum í gegnum Körfuna með 30% afslætti með því að skrá þig hér og nota afsláttarkóðann ESPNPLAYERXMAS

  • ESPN er heimili bandaríska háskólakörfuboltans og þar eru sýndir yfir 1000 leikir á tímabili
  • Ef þú býrð til aðgang fyrir 7. Janúar hér og setur inn ESPNPLAYERXMAS í promo code, þá færðu 30% afslátt
  • 12 mánuðir kosta aðeins 7700 kr.
  • Þetta tilboð rennur út 7. Janúar
  • Nýjar áskriftir hafa 7 daga prufutímabil
Fréttir
- Auglýsing -