Undirbúningstímabilið í NBA er komið á fullt og mörg lið á ferð og flugi þessa dagana. Það eru þó ekki bara NBA liðin sem fara til evrópu til þess að spila heldur koma stóru liðin í evrópu einnig til bandaríkjanna að spila. Fyrir helgina hafði aðeins eitt lið utan NBA sigrað lið úr deildinni á bandarískri grundu, það var Maccabi Tel Aviv frá Ísrael þegar það vann Toronto Raptors 103-105 árið 2005. Það breyttist þó þegar Minnesota Timberwolves tók á móti CSKA Moskvu um helgina en leikurinn var æsispennandi, fór í framlengingu og endaði með 108-106, sigri Moskvu.
Hvorki fleiri né færri en 8 leikmenn Moskvu skoruðu 10 stig eða meira í leiknum en þar fór fyrir sínu liði Milos Teodisic með 26 stig og 9 stoðsendingar. Derrick Williams var stigahæstur Minnesota manna með 21 stig og 9 fráköst.
Hægt er að sjá hápunkta leiksins í myndbandinu hér að neðan




