spot_img
HomeFréttirCriner fær reisupassann

Criner fær reisupassann

Kvennalið Grindavíkur hefur tekið þá ákvörðun að senda Dellena Criner heim eftir þrjá leiki í Domino´s deild kvenna. Ástæða heimferðar hennar er sú að hún er ekki að standa undir væntingum og passar ekki nægilega vel inn í leikmannahóp Grindavíkur.
 
Grindavík þarf á leikstjórnanda að halda en það myndi þó ekki skemma fyrir ef hún gæti spilað fleiri stöður innan vallarins. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um nýjan kana en Bragi Magnússon þjálfari liðsins mun vera með tvær til skoðunar. Ákvörðun um þetta mál verður tekin sem fyrst.
 
Frétt/ Jenný Ósk
  
Fréttir
- Auglýsing -