spot_img
HomeFréttirCraig hefur trú á að Ísland geti unnið báða leiki lokagluggans "Hefði...

Craig hefur trú á að Ísland geti unnið báða leiki lokagluggans “Hefði verið draumur í byrjun að vera í þessari stöðu”

Ísland tekur á móti Spáni í Laugardalshöll annað kvöld í næst síðasta leik undankeppni HM 2023. Síðasti leikur þeirra verður svo gegn Georgíu úti í Tíblisi komandi sunnudag 26. febrúar. Möguleikar Íslands á að tryggja sig áfram og á lokamótið eru ennþá raunverulegir þrátt fyrir tvö erfið töp í síðasta glugga keppninnar. Fyrir leikinn eru Georgía og Ísland jöfn að sigrum með fjóra á meðan að Úkraína er einum sigurleik fyrir aftan með þrjá, en liðin þrjú berjast um síðasta sætið inn á lokamótið úr L riðil.

Hérna eru fréttir af HM 2023

Karfan spjallaði við Craig Pedersen þjálfara Íslands um leikina tvo, heilsu íslenska liðsins og möguleikana á að tryggja sig áfram á lokamótið.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -