HomeFréttirCP3 kastaði í 13. tvennuna í röð

CP3 kastaði í 13. tvennuna í röð

Það voru rólegheit og rómantík í NBA deildinni í nótt en einungis tveir leikir voru á dagskrá. Chris Paul kastaði í 13. tvennuna í röð og Kevin Durant skoraði 28 stig þegar Oklahoma City og Clippers mættust en 28 er það mesta sem Durant hefur skorað í leik. Thunder vann leikinn 105-91 og var sigur þeirra í raun aldrei í hættu.
Fjórir leikmenn Thunder liðsins skoruðu 10 eða meira og þar var Kevin Durant fremstur með 28 stig, 8 stoðsendingar og 6 fráköst og Serge Ibaka skilað af sér 17 stigum. Hjá Clippers var Blake Griffin með 27 stig og 10 fráköst og var þetta ellefti 20/10 leikurinn hjá kappanum í síðustu 12 leikjum. Chris Paul skilaði af sér 17 stigum og 12 stoðsendingum sem var hans 13. tvenna í röð og virðist kappinn ætla að búa til met sem enginn mun koma til með að slá á næstunni.

Denver Nuggets virðast vera með tangarhald á Chicago Bulls því Bulls hafa ekki sigrað leik milli þessara liða síðan 8. nóv. 2010 og var engin breyting á í nótt. Nuggets unnu 97-87 og bundu enda á fimm leikja sigurgöngu Bulls. Það var fyrrum liðsmaður Bulls, Nate Robinson, sem gerði mönnum lífið leitt í upphafi fjórða leikhluta þegar hann smellti niður tveimur þriggja stiga skotum og setti niður tæknivíti á 1 mín. og 4 sek. Nuggets byrjaði leikhlutann 13-0 og dugði það svo sannarlega til sigurs.

Jordan Hamilton var með 17 stig og 6 fráköst og JJ Hickson smellti niður 14 og tók 9 fráköst fyrir Nuggets en alls voru 6 leikmenn þeirra með 10 stig eða meira. Hjá Bulls var  Rose með 19 stig og Carlos Boozer og Mike Dunleavy skiluðu 15 stigum hvor.

FINAL
 
8:00 PM ET
LAC

Los Angeles Clippers

91
 
OKC

Oklahoma City Thunder

105
W
  Q1 Q2 Q3 Q4 F
LAC 22 21 29 19 91
 
 
 
 
 
OKC 28 23 30 24 105
  LAC OKC
P Griffin 27 Durant 28
R Jordan 12 Adams 7
A Paul 12 Durant 8
 
Highlights
Fréttir
- Auglýsing -