HomeFréttirBynum missir úr átta vikur

Bynum missir úr átta vikur

15:56
{mosimage}

(Bynum) 

Lakers liðið í NBA deildinni varð fyrir áfalli í gær þegar í ljós kom að miðherjinn ungi Andrew Bynum yrði frá keppni næstu átta vikurnar eða svo vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leik í fyrrakvöld. Frá þessu er greint á www.visir.is  

Bynum hefur verið lykilmaður í frísku liði Lakers í vetur með 13 stig, 10 fráköst og bestu skotnýtinguna í deildinni – 63%. Hann datt illa í leik gegn Memphis í fyrrinótt og fékk högg á hnéskelina, sem brákaðist og gekk til. 

www.visir.is  

Mynd: www.andrewbynumonline.org

Fréttir
- Auglýsing -