Chicago Bulls eru komnir í toppsæti austurstrandarinnar í NBA deildinni eftir öruggan 98-79 sigur á Washington Wizards í nótt. Derrick Rose var stigahæstur í liði Bulls í nótt með 23 stig, 4 fráköst og 7 stoðsendingar en Rose hefur oftar en ekki undanfarið þótt líklegur til þess að vera valinn besti leikmaður deildarkeppninnar. Hjá Washington var Jordan Crawford atkvæðamestur með 27 stig. Bulls hafa nú unnið 12 heimaleiki í röð og alls 14 af síðustu 16 leikjum sínum.
Önnur úrslit næturinnar:
Atlanta 110-85 Milwaukee
Indiana 119-117 New York
Portland 104-101 Dallas
Mynd/ Rose og félagar í Bulls eru á skriði um þessar mundir.





