spot_img
HomeFréttirBúið að ráða leynivopn

Búið að ráða leynivopn

17:30

{mosimage}

 

 

Knattspyrnulið Keflavíkur undirbýr sig nú af krafti fyrir körfuboltaleikinn gegn körfuknattleiksliði Keflavíkur sem fram fer í Sláturhúsinu á föstudag kl. 19:00. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta hafa Bikarmeistarar Keflavíkur í knattspyrnu fengið til liðs við sig leikmann sem hér í fyrri tíð reyndist Keflavík oft erfiður ljár í þúfu.

 

Mikil spenna er fyrir leiknum sem er styrktarleikur fyrir Magnús Þór Gunnarsson og fjölskyldu hans sem varð fyrir miklu áfalli þegar íbúð þeirra í Reykjanesbæ skemmdist mikið í húsbruna. Aðgangseyrir á leikinn á föstudag verður kr. 500 og mun ágóðinn renna til Magnúsar og fjölskyldu.

 

Einnig hefur verið opnaður styrkarreikningur í Landsbankanum í Keflavík þar sem tekið er á móti frjálsum framlögum:

 

Landsbankinn í Keflavík

0142-05-3358

Kt: 070281-4309

 

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -