spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaBryndís og Hörður Axel með Keflavík í vetur

Bryndís og Hörður Axel með Keflavík í vetur

 

Keflavík samdi á dögunum við nokkra leikmenn fyrir komandi átök í Dominos deildunum. Stærstu fréttirnar þær að fyrrum landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir er komin á fullt eftir barnsburð og mun leik með liðinu á komandi vetri. Liðið hafði fyrr í sumar tilkynnt að þær María Ben Jónsdóttir og Telma Lind Ásgeirsdóttir væru einnig á heimleið til Keflavíkur fyrir tímabilið.

 

Karlamegin er það helst að frétta að landsliðsleikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson mun leika með liðinu á næsta tímabili, en félagið gerði einnig samninga við þá Elvar Snær Guðjónsson, Andra Þór Tryggvason og Davíð Páll Hermannsson fyrir næsta tímabil.

 

Fréttatilkynning Keflavíkur:

 

 

Fréttir
- Auglýsing -