spot_img
HomeFréttirBreki Gylfason aftur til Hauka

Breki Gylfason aftur til Hauka

Framherjinn efnilegi Breki Gylfason er snúinn aftur á fjalir Ásvalla og mun samkvæmt félaginu taka slaginn með Haukum í Domino’s deild karla næstu tvö árin. Breki varði síðasta tímabili í Bandaríkjunum þar sam hann var við nám við Appalachian State University en vegna breytinga hjá liði skólans ákvað hann að snúa heim og taka slaginn með Haukaliðinu.

Breki lék síðast með liðinu tímabilið 2017-2018 og var partur af Deildarmeistaraliði Hauka. Þá hefur hann verið í leikmannahópi A- landsliðs Íslands og lék með liðinu á síðustu Smáþjóðaleikum.

Fréttir
- Auglýsing -