Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur samþykkt að ráðast í byggingu á 5000m2 íþróttahúsnæði í bænum en húsið sjálft yrði það fyrsta sinnar tegundar á landinu. Um er að ræða hús frá ScandiHall og þekkjast þau jafnan sem ,,loftbóluhús“ með uppblásnu þaki. Þarna inni yrðu m.a. knattspyrnu- og körfuboltavöllur en hart er barist um lausa tíma í íþróttahúsinu í Hveragerði og segir jafnframt í síðustu fundargerð bæjarstjórnarinnar: ,,Fulltrúar Sjálfstæðisfélagsins í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar telja að nú hafi nóg verið rætt og ritað um bætta aðstöðu til íþróttaiðkunar í bæjarfélaginu og að komið sé að löngu tímabærum framkvæmdum.“
,,Þetta yrði ofboðslega mikil lyftistöng fyrir félagið, lyftistöng fyrir allar íþróttir í bænum. Þarna verður körfuboltavöllur innandyra í fullri stærð en húsið er um 5000 m2 og væri gaman að reisa húsið á næsta ári, á 20 ára afmælisári Hamars og ættum við öll að samgleðjast yfir þessu framtaki bæjaryfirvalda,“ sagði Lárus Ingi Friðfinnsson formaður Körfuknattleiksdeildar Hamars í samtali við Karfan.is.
Varðandi húsnæðið sjálft þá eru steyptir veggir sem ná 2-3 metra upp í loftið og settur dúkur yfir, húsið er svo blásið upp með heitu lofti. Loftborin íþróttahús hafa risið út um allan heim og verið þar í notkun til fjölda ára. Erlendis er þetta alþekkt byggingarform en húsið yrði það fyrsta sinnar tegundar hérlendis.
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Hveragerðisbæjar hefur gert sérstaka síðu á heimasíðu sinni um ,,loftbóluhúsið“ eða ,,mjúkhýsið“ eins og það er nefnt á heimasíðu Aldísar en þar kemur m.a. fram að áætlaður byggingarkostnaður verði um 300 milljónir.
Ekki er fyrirhugað að körfuknattleiksdeild Hamars leiki heimaleiki sína í nýja húsnæðinu heldur verði það einvörðungu notað til æfinga því áhorfendastæði verði ekki í boði í húsinu.
Mynd/ Sambærilegt mjúkhýsi í Noregi





