HomeFréttirBrandon Brown kvaddi með látum

Brandon Brown kvaddi með látum

 
Háloftafuglinn Brandon Brown hefur sungið sitt síðasta í Iceland Express deildinni að sinni en þrátt fyrir sigur Fjölnismanna í kvöld komust Grafarvogspiltar ekki í úrslitakeppnina. Brown neitaði þó að fara hljóðlega, kláraði með 32 stig í kvöld og 9 fráköst.
Brown átti nokkur svakaleg tilþrif í leiknum og Karl West Karlsson sat vitaskuld fyrir honum og náði m.a. ,,klippu“ þegar Tómas Heiðar Tómasson gerist svo óeigingjarn að grýta boltanum í spjaldið og hver annar en Brown kemur aðvífandi til að afgreiða tuðruna í körfuna.
 
Þökkum bara kærlega fyrir okkur Brandon.
Fréttir
- Auglýsing -