19:24
{mosimage}
Nýliðar Stjörnunnar í Iceland Express deild karla hafa gengið frá samningum við Braga Magnússon um að þjálfa liðið næsta vetur. Bragi tók við liðinu fyrir jól þegar allt var í kalda kolum og stýrði liðinu upp úr deildinni.
Í samtali við Braga sagði hann að ekkert væri komið á hreint með leikmannahópinn næsta vetur.
Mynd: www.stjarnan.is