Boston Celtis eru nú staddir í Evrópu (eftir að hafa millilent á íslandi) nánar tiltekið í Tyrklandi þar sem þeir spiluðu í kvöld gegn liði Fenerbache. Skemmst frá því að segja þá töpuðu Boston gegn heimamönnum með 91 stigi gegn 97 frá Fenerbache.
Það var nýliðin Jared Sullinger frá Ohio háskólanum sem leiddi lið Boston að þessu sinni með 16 stig líkt og Jeff Green. Stóru kanónurnar hjá Boston létu fara lítið fyrir sér að þessu sinni.
Hjá Fenerbache spilar Bo Lester Mcalebb og setti hann niður 21 stig en það var Romain Sato sem var þeirra stiga hæstur með 24 stig.