Bónus deild karla rúllar af stað í kvöld með fjórum spennandi leikjum í fyrstu umferð tímabilsins, sem allir hefjast klukkan 19:15.
Á Álftanesi fá heimamenn Hött í heimsókn austan af Héraði, en í Laugardal taka nýliðar Ármanns á móti Keflavík. Fyrir austan leika sömuleiðis nýliðar þegar Sindri fær ÍR í heimsókn á Höfn og á Hlíðarenda verður boðið upp á stórleik kvöldsins þegar Valur tekur á móti Stjörnunni.




