Bræðurnir Björn og Oddur Kristjánssynir hafa báðir ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna en þetta staðfesti Björn í samtali við Karfan.is í gærkvöldi. Báðir hafa þeir síðustu ár verið á mála hjá KR og á meðal sterkustu leikmanna í yngri flokkum landsins.
,,Við höfum átt góðan tíma í KR og kveðjum okkar liðsfélaga þar í góðu og óskum þeim alls hins besta. KR liðið er mjög vel mannað og okkur fannst því tími til kominn að leita nýrra tækifæra," sagði Björn við Karfan.is. ,,Þá erum við þakklátir fyrir að Stjarnan bjóði okkur velkomna og hlakkar okkur til að kynnast nýjum liðfélögum þar á bæ."
Vænkast þá hagur Garðbæinga í bakvarðastöðunum en báðir eru þeir bræður bakverðir og miklir skotmenn en Björn fékk m.a. að spreyta sig töluvert með KR á síðustu leiktíð. Björn lék þá 22 leiki með KR og gerði í þeim 2,1 stig, tók 1,1 frákast og gaf 1,5 stoðsendingu í leik í mikilli baráttu um spilatíma í þéttskipuðu liði KR.
Mynd/ Björn t.v. og Oddur t.h.





