spot_img
HomeFréttirBjörn hefur unnið sex síðustu leiki gegn litla bróðir

Björn hefur unnið sex síðustu leiki gegn litla bróðir

Björn Kristjánsson og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson leikmenn KR voru báðir ánægðir með sigurinn gegn ÍR í kvöld. KR vann þar með baráttu Reykjavíkur liðanna og heldur í jólafrí taplausir á heimavelli á árinu og það annað árið í röð. Þórir átti ljómandi leik, skilaði 16 stigum og sýndi stórkostlega takta á tímabilinu. Hann var ánægður með stækkandi hlutverk sitt í liðinu og leit björtum augum á framtíðina.

 

Björn kom inní byrjunarliðið fyrir leik og spilaði við litla bróðir sinn Odd Rúnar í ÍR. Spilamennska Björns var fín og er að sýna sig sem einn af skemmtilegri leikstjórnendum deildarinnar. Hann viðurkenndi að það væri gaman að fara með montrétt bræðranna inní jólin.

 

Fréttir
- Auglýsing -