Haukar og Keflavík mættust í Hafnarfirðinum í kvöld í hörku slag og höfðu Haukar á endanum betur en aðeins munaði einu stigi á liðunum fyrir fjórða leikhluta.
Leikurinn fór frekar hægt af stað og tók það liðin rúmar tvær mínútur að komast á blað. Liðin skiptust á körfum en sóknarleikur beggja liða var ekki til að hrópa húrra yfir í byrjun.Það var ekki fyrr en í öðrum leikhluta að það dró til tíðinda en þá náðu Keflvíkingar að taka völdin í leiknum og komust mest 18 stigum yfir. Gestirnir leiddu með 12 stigum í hálfleik 26-38.
Það var miklu ferskara Haukalið sem kom inn á völlinn í seinni hálfleik og hægt og bítandi unnu þær upp muninn. Haukar náðu að jafna metin undir lok þriðja leikhluta, 48-48, en Keflavík leiddi með einu stigi fyrir loka leikhlutann 48-49 eftir að Pálína Gunnlaugsdóttir setti niður annað af tveimur vítaskotum sínum.
Haukar komust yfir strax í fjórða leikhluta 50-49 og svo í 57-52 áður en Keflavík minnkaði muninn aftur. Leikhlutinn var jafn og spennandi allan tímann en Haukar voru þó ávallt skrefinu á undan og komust sex stigum yfir þegar rétt um tvær mínútur lifðu leiks. Varnarleikur Hauka var öflugur á þessum kafla og á sama tíma voru Keflavíkurstúlkur pínu klaufar að klára ekki auðveldar körfur. Síðasta mínútan fór að mestu fram á vítalínu Keflavíkur þar sem að Haukar endanlega gerðu út um leikinn og unnu bikarmeistarana 67-58.
Sierre Evans var atkvæðamest Hauka með trölla tvennu en hún setti niður 21 stig og reif ein 19 fráköst. María Lind Sigurðardóttir kom henni næst með 16 stig og 7 fráköst.
Hjá Keflavík var Pálína Gunnlaugsdóttir allt í öllu og setti niður 24 stig og tók 8 fráköst. Bryndís Guðmundsdóttir var með 12 stig og 11 fráköst og Jessica Ann Jenkins var einnig með 12 stig og 5 stoðsendingar.




