Valsliðið hafði fyrir leikinn ekki sigrað í efstu deild í 10 ár og þar af voru fyrstu fimm leikir tímabilsins tapleikir, það er því ekki hægt annað en að velta því fyrir sér hvort Þór hafi hreinlega vanmetið Valsliðið?
“Ekki hugmynd, ekki segja menn. Við erum ekkert lítið búið að hamra á að mæta í alla leiki klára og alla þessa viku búnir að vera að hamra á sama hlutnum. Ég neita að trúa því að menn hafi verið að ljúga að mér og hafi vanmetið þá. Við erum bara ekki betri en þetta”.
Tap eins og þetta á eftir að reynast Þórsuru dýrkeypt þar sem baráttan í efri hluta deildarinnar er gríðarlega jöfn og hefur líklega ekki verið svona jöfn í fjölda ára.
“Auðvita er það það, við erum bara ekkert í góðri stöðu, við erum búnir að tapa þremur í röð, við erum á loosing-streaki og verðum að fara að gera eitthvað drastíst”
[email protected]
mynd : Davíð




