Harðjaxlinn og húmoristinn Charles Barkley er ekki þekktur fyrir að vera með einhverjar ,,glassúr“-útgáfur af hlutunum. Hann er nú búinn að senda liðsmönnum Miami Heat væna sneið og sagði að það hefði enginn áhuga á Heat. Barkley vildi að liðsmenn Heat hættu þessu væli og færu að einbeita sér að því að spila leikinn en liðsmenn Heat hafa látið í veðri vaka að þeir standi einir andspænis öllum öðrum og að það hlakki í fólki tapi þeir leik.





