HomeFréttirBaráttan um annað sætið féll Haukum í vil

Baráttan um annað sætið féll Haukum í vil

Haukar fengu Keflavík í heimsókn í Hafnarfjörðinn í kvöld í fyrstu umferð eftir jólapásu þar sem barist var um annað sætið í deildinni og voru það Haukar sem fóru með léttan 85-59 sigur af hólmi.
 
Leikurinn byrjaði frekar jafn þar sem að Keflavík voru aðgangsharðari og spiluðu þétta vörn. Á meðan áttu Haukar í bullandi vandræðum sín megin og brutu mjög mikið af sér sem hleypti Keflavíkurstúlkum ansi oft á línuna.
 
Haukar fóru svo að stoppa upp í lekann í vörninni og fóru einnig að hirða fráköst, en þær áttu eftir að hirða 63 fráköst í heildina og þar af 35 sóknarfráköst á móti aðeins 28 heildarfráköstum hjá Keflavík. Leikurinn var engu að síður hnífjafn allt þar til að Lele Hardy skellti niður tveimur þristum í röð og stuttu síðar bætti Auður Íris Ólafsdóttir einum til viðbótar og við það voru Haukar komnir með 5 stiga forustu og ákveðna yfirhönd í leiknum sem þær áttu ekki eftir að gefa upp þrátt fyrir að Keflavík hafi lengi ekki verið langt undan.
 
Haukar lentu í villuvandræðum snemma í öðrum leikhluta en Guðrún Ósk Ámundadóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir fengu báðar sína þriðju villu þá. Það átti þó ekki eftir að há Haukunum þar sem að þær áttu mjög góðan þriðja leikhluta þar sem þær yfirspiluðu Keflavík 26-10 eftir að hafa byrjað hann 7-0. Þar með var leiknum lokið og bara formsatriði að spila seinustu mínúturnar.
 
Að venju átti Lele Hardy RISA leik fyrir Haukanna en hún skoraði 40 stig, tók 24 fráköst, gaf fimm stoðsendingar og stal knettinum fjórum sinnum. Hún var þó ekki sú eina sem að skilaði góðum leik fyrir Hauka því Margrét Rósa Hálfdanardóttir skoraði 16 stig og tók fimm fráköst (allt sóknarfráköst), Gunnhildur Gunnarsdóttir skoraði 10 stig, Auður Íris Ólafsdóttir átti sjö stoðsendingar og Dagbjört Samúelsdóttir og Jóhanna Björk Sveinsdóttir voru algjörar frákasta maskínur með átta og 13 fráköst hvor.
 
Hjá Keflavík voru það aðeins þrír leikmenn sem áttu prýðisleik og var Sara Rún Hinriksdóttir þar stigahæst með 19 stig. Á eftir henni kom Bryndís Guðmundsdóttir með 16 stig og sex fráköst. Síðast en ekki síðst var Porsche Landry með næstum því fjórfalda tvennu en hún skoraði 14 stig, tók níu fráköst, gaf sjö stoðsendingar en var svo með átta tapaða bolta sem þykir þó ekki eftirsóknarvert.
 
 
 
Mynd eftir Axel Finn/ Dagbjört Samúelsdóttir átti fínan leik 
Fréttir
- Auglýsing -