spot_img
HomeFréttirBakken Bears danskir meistarar

Bakken Bears danskir meistarar

9:25

{mosimage}

Bakken Bears tryggði sér í gær danska meistaratitilinn þegar liðið sigraði Svendborg, 91-82, í þriðja leik liðanna og þar með einvígið 3-0 og raunar unnu þeir alla 8 leiki sína í úrslitakeppninni. Slógu Næstved út 2-0 í 8 liða úrslitum, slógu meistara síðasta árs, Horsens IC, út 3-0 og eins og fyrr segir urðu Svendborgmenn á vegi þeirra í úrslitum og þar fóru leikar 3-0.

Segja má að Bakken hafi farið KR leiðina í úrslitunum, þeir voru undir lengst af í tveimur fyrstu leikjunum en náðu að sigra í blálokin en í þriðja leiknum leiddu þeir lengstum en Svendborg náði að koma leiknum í framlengingu. Þar stóð fyrirliði Bakken, Jens Jensen, upp og skoraði tvær þriggja stiga körfur snemma og þar með var allur vindur úr Svendborgmönnum sem voru að leika til úrslita í fyrsta skipti. Þetta var jafnframt sjöundi meistaratitill Bakken og sá þriðji á fjórum árum en Geoff Kotila sem nú þjálfar Snæfell stjórnaði liðinu síðust fjögur tímabil.

[email protected]

Mynd: www.basketligaen.dk

 

 

Fréttir
- Auglýsing -