Axel Kárason tók þátt í Evrópuævintýri A-landsliðs karla nú á dögunum, þar sem liðið þeyttist út um alla Evrópu og spilaði alls 10 landsleiki heima og heiman á innan við einum mánuði. Hann er leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Værlöse í Kaupmannahöfn og leggur stund á nám í dýralækningum við Kaupmannahafnarháskóla. Heimasíðu Tindastóls lék forvitni á að vita hvernig Axel upplifði stemninguna í landsliðinu og var farið um víðan völl.
Axel segir að tilfinningin við þeim fréttum að vera í 12 manna leikmannahópi landsliðsins hafi fyrst verið léttir yfir því að fyrirhöfnin sem fylgdi því að taka þátt í verkefninu hafi borið árangur. – Bæði það að hafa farið helgarferð til Íslands um miðjan júní og svo aftur út til Danmerkur í 2 vikur til að klára prófin, og að hafa „brugðið búi“ í Skagafirðinum og farið suður um miðjan júlí voru töluverðar fórnir fyrir mann eins og mig, sérstaklega seinna atriðið. Það kom því upp sælutilfinning yfir því að vita að það var ekki til einskis gert. Axel bætir við að spenningurinn hafi síðan tekið við af léttinum. – Ég hafði fengið smávegis smjörþef af umgjörðinni hjá stóru þjóðunum þegar við spiluðum æfingaleik við Litháa í Vilnius seinni part júlímánaðar, þannig að tilhlökkunin var mikil við að sjá fram á að spila 3-4 leiki til viðbótar fyrir framan þúsundir manna. Svo var að sjálfsögðu spennandi að fá að spila heimaleik með landsliðinu, það hafði ég ekki gert áður.