Í kvöld kom í ljós að það verður Valur sem mætir Grindavík í undanúrslitum Bónusdeildar karla eftir sigur á Keflavík í hreinum úrslitaleik um sætið.
Liðin áttust við í fimmta og síðasta leik átta liða úrslitanna, en þar sem allir leikir syrpunnar höfðu verið spennandi var búist við mikilli hörku. Sú varð raunin fyrstu þrjá leikhlutana; Keflavík vann fyrsta og þriðja leikhluta en Valur þann annan. Það var svo ekki fyrr en í fjórða leikhluta að allt small saman hjá Valsmönnum. Þeir keyrðu þá hreinlega yfir Keflvíkinga og tryggðu sér öruggan 90-76 sigur í N1-höllinni, sem iðaði af stemningu löngu áður en flautað var til leiks.
Karfan spjallaði við Igor Maric leikmann Vals eftir leik í N1 höllinni.





