spot_img
HomeFréttirÁtta liða úrslitin hefjast í dag - Verja Bandaríkin titilinn?

Átta liða úrslitin hefjast í dag – Verja Bandaríkin titilinn?

Það er heldur betur spenna að færast í leika á heimsmeistaramótin kvenna sem fram fer á Tenerife þessa dagana.

Átta liða úrslit mótsins hefjast í dag en þegar er einum leik lokið en Bandaríkin sem þykja ansi sigurstrangleg eru komin í undanúrslit. Nígería heldur áfram að koma á óvart sem og Belgía en bæði lið eru til alls líkleg.

Allir leikir mótsins eru í beinni útsendingu á Youtube rás FIBA. Úrslitaleikurinn fer fram á sunnudag og verður í beinni útsendingu.

Upphitun fyrir átta liða úrslitin má finna hér að neðan en Karfan mun fylgjast með framvindu mála.

 

Fréttir
- Auglýsing -